Tilgangur menningarvefsins er að að gera upplýsingar um menningararf þjóðarinnar og menningarviðburði á öllu landinu aðgengilegar innlendum og erlendum ferðamönnum.
Skráðir eru og kynntir reglubundið menningarviðburðir á öllu landinu og upplýsingum miðlað um bókmenntir og menningu, bæði með upplýsingatextum um menningararf Íslendinga og almennri umræðu innan ramma hugvísinda.
Til viðbótar þessu býður vefurinn upp á flokkað safn krækja inn á aðra menningarvefi. Höfuðáhersla er lögð á að upplýsingar séu greinargóðar og reglulega uppfærðar.
Menningarvefurinn er samstarfsverkefni Samgönguráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis og Snorrastofu í Reykholti.
Athugasemdir berist til menning@snorrastofa.is